Ég heiti Sigrún og er Magnúsdóttir og er Súgfirðingur í Grímsey. Ég er mamma tveggja barna, Ágústu Sóleyjar (f. 29. sept. 2009) og Skarphéðins Áss (f. 11. sept. 2011).
Bý núna ein í Grímsey þar sem ég kenni við grunnskólann. Börnin mín búa hjá pabba sínum á Akureyri. Þetta er verkefni sem ég er að takast á við, einn vetur ein úti við heimskautsbaug til að safna pening. Og það gengur vel. Flyt til Akureyrar í vor. Ég setti niður nokkur atriði varðandi nýtt ár í dagbók sem ég keypti. Líkamlegt og andlegt hreysti (virðist vera með ofnæmi fyrir of nákvæmum markmiðum... verð aldrei latari eða gráðugri í sælgæti). Lesa. Svo setti ég líka blogg og spurningamerki á eftir. Velti fyrir mér hvort ég ætti kannski að vera dugleg að blogga. En ég get ekki sett mér mjög nákvæmt markmið með það því þá verður það kvöð en þetta er eitthvað sem á að vera gaman. Sjáum til. Þarf að tileinka mér knappari texta. Það er væntanlega ekki of nákvæmt markmið.